Jólakeppnin 2021
Ágæta fjölskylda.
Gleðilega hátíð.
Það er komið að keppni. Hver og einn fjölskyldumeðlimur fær nú skutlu í sínar hendur. Á hvorum væng skutlurnar eru tvær línur sem merkja hvar á að brjóta uppá vænginn. Þetta skýrir sig nokkuð sjálft en hér fyrir neðan eru smá leiðbeiningar til öryggis:

Nú haldið þið út (mikilvægt að gera þetta í myrkri), kveikið ljósið á skutlunni og byrjið að skjóta upp. Mikilvægt er að skjóta sem hæst en keppnin snýst um fallegasta niðurflugið þar sem skutlan skal snúast óaðfinnanlega um sjálfa sig. Ef tveir eða fleiri ná samskonar niðurflugi er keppt innbyrðis þeirra á milli um lengsta flugtímann.
Sigurvegarinn fær svo verðlaunapakkann sem er meðfylgjandi.
Kveðja,
Jólasveinarnir á Klukkuvöllum 5